Hlerað í RVK

Thursday, March 30, 2006

"Síðan sneitt brauð!"

Unglingsstúlka:"Þau eru bara skiluru versta par sem hefur verið ever. Hún er með svo svartan húmor og er líka svo þreytandi. En samt er hún alveg ágæt, ég er búin að vera að hanga með henni í nokkra daga sko og hún venst alveg ágætlega!"

-Heyrt í Strætó leið 11-

Sunday, March 26, 2006

"Dýrin okkar"

Ungur faðir:"Hvar geymiru bíbí?"
Lítil stúlka:"Í eyrunum."


-Heyrt í Kringlunni-

Monday, March 20, 2006

"Anyway you want, you got it."

Maður:"Þeir segja að hann sé besti boxari pund fyrir pund."
Afgreiðslumaður:"Hver?"
Maður:"Roy...Roy Orbison..."

-Heyrt í Mjóddinni-

"Er Leonard Cohen grænn?"

Skræk stúlka:"Hey syngjum Shrek lagið!"
Stúlka 1:"Já!"
Stúlka 2:"Já!"
Skræk súlka, stúlka 1 og stúlka 2: "Hallelujah, hallelujah..."


-Heyrðis í strætóskýli fyrir utan smáralind-

Kannski klént en mér er sama...

Flestir ættu nú að kannast við síðuna http://www.overheardinnewyork.com/ og datt mér í hug að sniðugt væri að prufa svona hérna, því það er magnað hvað maður heyrir oft úti á götu. Það getur vel verið að það séu til fullt af svona síðum, en ég ætla að prófa þetta og sjá hvort þetta virkar. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu endilega sendið mail á heyra100@hotmail.com

Þar sem þetta er bara tilraun þá veit ekki hvað ég endist lengi með þetta. En allavega here goes.